{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreiaehvsdyj7mwo5rqnfkogagd2cwoson7urzaiyxugir3luawofvbu",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mp23oxhw2b42"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreichcx5m6vjxiv4yth5pk2qoqlljjyofcpu3rdyqhyrpev4q2ie3mi"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 150067
},
"path": "/433/2026/06/23/vill-olmur-komast-til-arsenal-i-sumar",
"publishedAt": "2026-06-24T12:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Morgan Rogers er sagður hafa mikinn áhuga á að ganga til liðs við Arsenal FC í sumar, samkvæmt fréttum Talksport.\n\nHinn 23 ára gamli miðjumaður og kantmaður hefur átt góðu gengi að fagna með Aston Villa FC og hefur vakið athygli stærstu félaga ensku úrvalsdeildarinnar. Arsenal hefur nú gert hann að einu helsta skotmarki sínu á félagaskiptamarkaðnum.\n\nTalið er að Rogers sé spenntur fyrir möguleikanum á að flytja sig um set til Lundúna og taka næsta skref á ferlinum undir stjórn Mikel Arteta.",
"title": "Vill ólmur komast til Arsenal í sumar"
}