{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreiefaw6td2kyndsyfce72zqmxwjwovriw65e3ywhrrh4x7rb544k5a",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3moxrtjh6ybq2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreiaofbc32ujdhwxna72bauu7j3m6wl6npwwjbuspgw7duvntn2523q"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 177603
},
"path": "/433/2026/06/23/fer-fram-a-thad-ad-fa-ad-fara-i-sumar",
"publishedAt": "2026-06-23T15:00:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Julián Álvarez hefur gefið sterklega í skyn að hann vilji yfirgefa Atlético Madrid í sumar til að láta draum sinn rætast, en talið er að framherjinn vilji helst ganga til liðs við FC Barcelona.\n\nÁlvarez tjáði sig um framtíð sína eftir 2-0 sigur Argentínu á Austurríki á heimsmeistaramótinu á mánudag. Þar sagði hann að hann hefði rætt við forráðamenn félagsins og teldi að félagaskipti væru besta lausnin fyrir alla aðila.",
"title": "Fer fram á það að fá að fara í sumar"
}