{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreieuirtk7s4m26ldc6pm4qblvb5hf4t2ann6khwqtj54beba75usdi",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3movookk57oq2"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreicq22mvyf6g4cb67ofxbp472lf6sdmv5mtzw7d2sh46yk3ckvl354"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 137578
  },
  "path": "/433/2026/06/22/sadarnir-gaetu-bjargad-rashford-og-opnad-dyrnar-til-barca",
  "publishedAt": "2026-06-22T18:00:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Marcus Rashford gæti fengið aukið tækifæri til að ganga til liðs við Barcelona ef Raphinha ákveður að taka tilboði frá Sádi-Arabíu.\n\nSamkvæmt Talksport hefur brasilíski kantmaðurinn Raphinha fengið mjög áhugavert tilboð frá Sádi-Arabíu. Ef hann yfirgefur Barcelona í sumar myndi það opna pláss í sóknarlínu katalónska stórliðsins og gæti aukið líkur á komu Rashford frá Manchester United.\n\nBarcelona vildi ekki nýta forkaupsrétt á Rashford fyrir 26 milljónir punda en gætu komið aftur á borðið ef Raphinha fer.",
  "title": "Sádarnir gætu bjargað Rashford og opnað dyrnar til Barca"
}