{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreihisbsqvthva5auk4bqk7o6sifrqjnuxg7tsp6cam75wrfu5kvyaa",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3movoo3a3ris2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreigu37qn2wzr5mftjpbad4ltghqrh535oeejv6dwtucrdtmbe5ufpu"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 125545
},
"path": "/433/2026/06/22/messi-skrifadi-soguna-med-argentinu-i-kvold",
"publishedAt": "2026-06-22T19:06:54.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Argentína tryggði sér sæti í 32 liða úrslitum heimsmeistaramótsins með 2-0 sigri á Austurríki í kvöld.\n\nEins og svo oft áður var það Lionel Messi sem stal senunni. Fyrirliðinn skoraði bæði mörk Argentínu og skrifaði um leið nýjan kafla í sögubækurnar.\n\nMessi skoraði sín 17. og 18. mörk á heimsmeistaramótum og bætti þar með eigið met sem markahæsti leikmaður í sögu keppninnar. Hinn 38 ára gamli töframaður hefur verið í frábæru formi á mótinu og heldur áfram að sýna að hann er enn einn besti knattspyrnumaður heims.",
"title": "Messi skrifaði söguna með Argentínu í kvöld"
}