{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreias5xognxqkqjetgyraffni7n7zrtt6x2vwyjxxd3uka4gpevv4em",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3mouttp66hp32"
  },
  "coverImage": {
    "$type": "blob",
    "ref": {
      "$link": "bafkreiblzslfnpbzjbelwbraq7axstseircaxda2dmfliimwa3k653n62u"
    },
    "mimeType": "image/jpeg",
    "size": 122830
  },
  "path": "/433/2026/06/21/united-og-liverpool-sogd-aetla-i-strid-um-thyska-landslidsmanninn",
  "publishedAt": "2026-06-22T10:30:00.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Felix Nmecha gæti verið á leið frá Borussia Dortmund í sumar en samkvæmt fréttum er þýski miðjumaðurinn opinn fyrir því að skipta um félag.\n\nNmecha, sem er 25 ára gamall, hefur vakið áhuga tveggja stærstu félaga ensku úrvalsdeildarinnar, Liverpool og Manchester United. Bæði félögin fylgjast grannt með stöðu hans hjá Dortmund og gætu reynt að fá hann til sín á komandi vikum.",
  "title": "United og Liverpool sögð ætla í stríð um þýska landsliðsmanninn"
}