External Publication
Visit Post

Setja upp verðmiða eftir að Liverpool fór að sýna áhuga

DV.is [Unofficial] June 22, 2026
Source
Liverpool er á meðal þeirra félaga sem hafa mikinn áhuga á að fá kantmanninn Yan Diomande frá RB Leipzig, samkvæmt fréttum frá Sky Sports. Þýska félagið er þó ekki tilbúið að láta hinn unga Fílabeinsstrending fara nema fyrir gríðarlega háa upphæð. Talið er að Leipzig myndi aðeins íhuga sölu ef tilboð upp á um 130 milljónir evra, eða rúmlega 112 milljónir punda, bærist. Liverpool hefur þegar gefið til kynna að félagið sé tilbúið að bjóða allt að 86 milljónir punda í leikmanninn, en það er töluvert undir verðmati Leipzig.

Discussion in the ATmosphere

Loading comments...