{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreifl2jd6a5bkctbcptxfjvqea5r2ivcszgvehth2skkinqbv4pwtu4",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3monve4vxkpa2"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreid2kfaylb7qnzenvbxvi4zfaf5jbkavwk3ouaqk5cbc62yz43o5tu"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 169943
},
"path": "/433/2026/06/19/ensk-og-thysk-storlid-horfa-til-belgiu",
"publishedAt": "2026-06-19T16:30:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Tottenham og Manchester United eru bæði sögð hafa áhuga á belgíska miðjumanninum Nathan De Cat hjá Anderlecht.\n\nDe Cat er aðeins 17 ára gamall en er talinn einn efnilegasti miðjumaður Evrópu um þessar mundir.\n\nÞað verður ekki ódýrt að fá hann til sín í sumar þrátt fyrir ungan aldur. Anderlecht gæti farið fram á að fá rúmar 30 milljónir punda fyrir leikmanninn.\n\nFleiri félög fylgjast einnig með honum, þar á meðal þýsku stórliðin Bayern Munchen, Bayer Leverkusen, Dortmund og RB Leipzig.",
"title": "Ensk og þýsk stórlið horfa til Belgíu"
}