{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreie7cl6jlwr2yamxzrpga5jbafyt67s2q4avnqb3d6thbxxrttvfwe",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3monhwcblto52"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreigyfqffe526odhjvbp3fu7j3ouhz6gncplcknv4oan5juy44pxhea"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 103895
},
"path": "/433/2026/06/19/liverpool-undirbyr-annad-tilbod",
"publishedAt": "2026-06-19T12:30:00.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Liverpool ætlar sér að gera nýtt tilboð í kantmanninn Yan Diomande eftir að RB Leipzig hafnaði tilboði upp á 100 milljónir evra í gær.\n\nSamkvæmt helstu miðlum vill þýska félagið fá nær 120 milljónir evra fyrir þennan 19 ára gamla landsliðsmann Fílabeinsstrandarinnar, sem hefur heillað í Þýskalandi og einnig í fyrsta leik sínum á HM.\n\nBlaðamennirnir Fabrizio Romano og Florian Plettenberg segja Liverpool vera tilbúið að hækka tilboð sitt á næstu dögum.",
"title": "Liverpool undirbýr annað tilboð"
}