{
"$type": "site.standard.document",
"bskyPostRef": {
"cid": "bafyreiahj6urlc4io6lmthcgyo6b2fctdd3nhd3u2cq4tnl4nd2ysfqcza",
"uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3molk5pqlqu42"
},
"coverImage": {
"$type": "blob",
"ref": {
"$link": "bafkreiamqpgytgffmoc6jddsquqh337n64eqc3erw6n3apivfq3yybirqi"
},
"mimeType": "image/jpeg",
"size": 151865
},
"path": "/433/2026/06/18/stormidlar-heimsins-taeta-ronaldo-i-sig-eftir-gaerdaginn-skel-af-knattspyrnumanni",
"publishedAt": "2026-06-18T15:35:18.000Z",
"site": "https://www.dv.is",
"textContent": "Cristiano Ronaldo reið ekki feitum hesti í jafntefli Portúgals við Kongó í fyrsta leik liðanna á HM í gær. Hefur hann verið harðlega gagnrýndur af mörgum af stærstu miðlum heims í kjölfarið.\n\nMargir horfðu til Ronaldo í kjölfar þess að Lionel Messi setti upp sýningu og skoraði þrennu í 3-0 sigri heimsmeistara Argentínu á Alsír nóttina áður. Ronaldo fylgdi því þó engan veginn eftir.\n\nBreska blaðið The Independent sagði hann hafa verið sem styttu inni á vellinum og hélt því fram að Portúgal hefði fórnað enn einu heimsmeistaramótinu fyrir egó stórstjörnunnar.",
"title": "Stórmiðlar heimsins tæta Ronaldo í sig eftir gærdaginn - „Skel af knattspyrnumanni“"
}