{
  "$type": "site.standard.document",
  "bskyPostRef": {
    "cid": "bafyreihugup4tnwns64hrhbbndolbzwbtlaghsstr7iaaa33gmvkjtshca",
    "uri": "at://did:plc:eagvzgvirqka32kbqendiysw/app.bsky.feed.post/3moldfqnomvx2"
  },
  "path": "/enski-boltinn/2026/06/18/sarir-og-svekktir-newcastle-menn-tapa-enn-a-ny-fyrir-liverpool-a-markadnum",
  "publishedAt": "2026-06-18T14:41:31.000Z",
  "site": "https://www.dv.is",
  "textContent": "Newcastle United taldi sig vera búið að tryggja sér undirskrift Victor Munoz frá Osasuna áður en Liverpool kom inn í málið og náði að snúa leikmanninum sér í hag.\n\nSamkvæmt upplýsingum hafði Newcastle fengið samþykkt tilboð upp á 33,3 milljónir punda frá Osasuna, þar af 29 milljónir í grunnverð og 4,3 milljónir í mögulegar viðbótargreiðslur. Þá hafði hinn 22 ára gamli kantmaður einnig samþykkt persónulega samninga og sagt forráðamönnum Newcastle að hann vildi ganga til liðs við félagið.",
  "title": "Sárir og svekktir Newcastle menn - Tapa enn á ný fyrir Liverpool á markaðnum"
}