Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra
DV.is [Unofficial]
February 26, 2026
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt tvo unglinga fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á þriðja unglinginn. Atvikið átti sér stað að kvöldlagi árið 2023, utandyra á Akraensi. Ákærðu voru sagðir hafa í félagi ráðist á brotaþola, tekið hann niður í jörðina og sparkað í hann ítrekað, auk þess sem annar þeirra hefði slegið hann með hnefa í andlitið. Lesa meira
Discussion in the ATmosphere