Jóhann Berg riftir samningi sínum í Abú Dabí – Spenntur fyrir næstu áskorun
DV.is [Unofficial]
February 9, 2026
Jóhann Berg Guðmundsson hefur rift samningi sínum við Al Dhafra FC í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Liðið er staðsett í Abú Dabí. Félagið greinir frá því að Jóhann hafi yfirgefið félagið á samfélagsmiðlum. Jóhann Berg sem er 35 ára gamall samdi við félagið síðasta sumar en hefur nú lokið dvöl sinni þar. „Spenntur fyrir næstu áskorun;“ Lesa meira
Discussion in the ATmosphere